Vanskilahlutfall byggingariðnaðarins nærri þrefaldast það sem af er ári

Samtök iðnaðarins, SI, telja að peningastefnunefnd eigi að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,75%. Vextir hafa verið hækkaðir tvisvar í ár, um samtals hálft prósentustig. Peningastefnunefnd kynnir næstu vaxtaákvörðun á miðvikudag.„Hagkerfið kólnar hratt, aðhaldsstig peningastefnunnar er þegar mikið og á næstu vikum munu liggja fyrir upplýsingar sem geta haft afgerandi áhrif á verðbólguhorfur. Að mati SI kallar staðan á þjóðarsátt þar sem hagstjórnaraðilar stilla saman strengina og finna samhljóm um þær aðgerðir sem þarf til að ná niður verðbólgu og vöxtum,“ segir í tilkynningu samtakanna.„Raunstýrivextir eru háir og yfir því stigi sem peningastefnunefndin telur að þurfi til að beina verðbólgunni niður i í 2,5% verðbólgumarkmið bankans. Aðhald peningastefnunnar er því þétt.“ EKKI NÓG AÐ HORF
Vanskilahlutfall byggingariðnaðarins nærri þrefaldast það sem af er ári

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd