Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við vasaþjófum og hvetur fólk til að huga vel að eigum sínum á fjölförnum ferðamannastöðum. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.„Upplýsingar eru um að þeir hafi verið á ferðinni á þekktum ferðamannastöðum í okkar umdæmi,“ segir í færslunni.Þeir sem sjá um að fara með hópa á þekkta ferðamannastaði eru einnig beðnir um að upplýsa ferðamenn í sínum hópum um að vasaþjófar gætu verið á ferð og að huga að eigum sínum.Ferðamenn við rútu á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Ragnar Visage