Við inngöngu í Evrópusambandið gætu takmarkanir sem nú gilda um erlent eignarhald í íslenskum sjávarútvegi verið felldar úr gildi. Þetta er mat Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.Í greiningu SFS segir að reynsla annarra Evrópuríkja sýni að landskvóti tryggi hvorki innlent eignarhald né yfirráð yfir nýtingu hans. Dæmi séu um að erlendar útgerðir hafi náð yfirráðum yfir aflaheimildum annarra landa.Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, segir mikla verðmætasköpun á Íslandi úr sjávarútvegi, sérstaklega vegna þess að afurðin sé fullunnin á Íslandi. Aukið eignarhald erlendra aðila í sjávarútvegi gæti leitt til þess að meira af fiski yrði unninn erlendis. TAKMARKANIR ÞURFI EKKI AÐ GILDA Á BÁÐA BÓGA Fjárfesting erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum er nú takmörkuð við 25