Tölvuþrjótar rændu skattaupplýsingum hundraða þúsunda

Tölvuþrjótar hafa komist yfir skattaupplýsingar hundraða þúsunda franskra skattgreiðenda, fyrirtækja jafnt sem einstaklinga.Roland Lescure er fjármálaráðherra Frakklands.EPA / Olivier MatthysFranska fjármálaráðuneytið greindi frá þessu í gærkvöld. Þrjótarnir segjast hafa stolið gögnum nærri sjö hundruð þúsund skattgreiðenda að því er segir á vefnum FrenchBreaches, sem fylgist með, greinir og skráir stafræn gagnabrot, tölvuárásir og leka á viðkvæmum skattaupplýsingum. Ráðuneytið segir hverjum og einum sem árásin snertir verða sendar upplýsingar um hvað komist var yfir og hvernig þeir skuli bregðast við.
Tölvuþrjótar rændu skattaupplýsingum hundraða þúsunda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd