Búlgarska söngkonan Dara vann keppnina fyrir Búlgaríu í vor með laginu Bangaranga. Kennimerki Moroccanoil má sjá í bakgrunni myndarinnar.EPA / HANNIBAL HANSCHKEÍsraelska fyrirtækið Moroccanoil hefur ákveðið að endurnýja ekki styrktarsamning sinn við Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.Norska ríkisútvarpið greinir frá. Fyrirtækið, sem framleiðir meðal annars ýmsar hárvörur, hefur verið aðalstyrktaraðili keppninnar í sex ár.Fyrirtækið var stofnað í Tel Aviv í Ísrael árið 2003 og mikið af framleiðslunni fer fram í Ísrael þó að höfuðstöðvar fyrirtækisins séu í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur verið á sniðgöngulista vegna átakanna á Gaza og því hefur styrktarsamningurinn við Eurovision keppnina verið umdeildur.Næsta Eurovision keppnin verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu í m