Áframhaldandi takmarkanir á fjárfestingum erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi eru mikilvæg vörn gegn því að yfirráð yfir íslenskum aflaheimildum færist úr landi að mati Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS.Í nýrri greiningu samtakanna segir að við inngöngu í ESB myndi heimild Íslands til að viðhalda núverandi reglum að óbreyttu falla úr gildi.Núgildandi lög um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri kveða á um að þeir megi ekki eiga meira en 25% eignarhlut í fyrirtækjum sem stunda fiskveiðar í íslensku efnahagslögsögunni.Verði aðildarviðræðum við Evrópusambandið haldið áfram telja SFS því nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld tryggi að Ísland hafi áfram sömu heimildir og nú til að takmarka fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.SFS segja nauðsynlegt að Ísla