Samgöngustofa kyrrsetti í lok júlí skipið Bandero sem er í eigu Paul Watson-samtakanna. Í kjölfarið óskaði stofnunin eftir gögnum og upplýsingum frá útgerð skipsins, en umbeðin gögn eru nauðsynleg svo hægt sé að framkvæma aðra skoðun. Í kjölfarið er hægt að aflétta kyrrsetningu. Engin svör hafa þó enn borist frá samtökunum.