Tveir alvarlega slasaðir eftir lestarslys

Um 150 farþegar voru um borð í lestinni þegar slysið átti sér stað.AP/PA / Jonathan BradyTveir eru alvarlega slasaðir og átján hlutu minni áverka þegar lest fór út af sporinu í bænum Lewes í Austur Sussex á Englandi síðdegis í gær.150 farþegar voru um borð í lestinni sem fór frá Victoriu-lestarstöðinni í London. Þrír lestarvagnar ultu á hliðina þegar lestin fór af sporinu.Mikil hræðsla greip um sig meðal farþega sem þurftu aðstoð björgunarfólks til að komast út úr lestarvögnunum.Rannsókn er hafin á slysinu en orsök þess er óþekkt.
Tveir alvarlega slasaðir eftir lestarslys

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd