Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, sigraði í aukakosningunum sem fram fóru í Clacton á Englandi í gær. Farage fékk 22.239 atkvæði í kosningunum. Hans helsti keppinautur, Fötufés greifi, fékk 9.455 atkvæði. Hinir 32 frambjóðendurnir fengu undir 500 atkvæði hver.Farage var ekki viðstaddur þegar endanleg úrslit voru kynnt en hefð er fyrir því að allir frambjóðendur séu viðstaddir þegar úrslit eru lesin upp. Hann segir að lögreglan í Essex hafi varað sig við því að úrslitin yrðu trufluð með skipulögðum hætti.Heimildir breska ríkisútvarpsins herma að þetta sé ekki rétt, lögreglan hafi ekki gefið út neinar viðvaranir til frambjóðenda. Umbótaflokkurinn hefur einnig aflýst morgunræðu Farage sem var ráðgerð eftir kosningarnar, sem flokkurinn hafði kynnt sem mikilvæga ræðu.34 frambjóðendur kepp