Orrustuþotur skutu niður dróna í norðausturhluta Lettlands í nótt. Lettneska ríkisútvarpið greinir frá. Appelsínugul viðvörun var send út með smáskilaboðum til íbúa um klukkan fjögur að staðartíma í fimm héruðum í austurhluta Lettlands þegar drónans varð vart.Orrustuþotur sem sjá um loftrýmisgæslu í Lettlandi á vegum Atlantshafsbandalagsins skutu drónann niður í Balvi-héraði og var viðvörun aflétt um klukkustund síðar.Loftrýmisgæslunni, Baltic Air Policing, er sinnt af flugherjum nokkurra NATO-þjóða sem skiptast á að sinna gæslunni til fjögurra mánaða í senn. Tyrkland sinnir um þessar mundir loftrýmisgæslu í Eistlandi og Ítalar sjá um loftrýmisgæslu í Litáen.Ekki liggur fyrir hvaðan dróninn kom eða hver ber ábyrgð á honum.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem drónar rjúfa loftrými Lettlands. Orr