Ferðamenn fluttir burt á bátum vegna skógarelda

Um 500 ferðamenn voru fluttir burt frá ströndum Halkidiki-skaga nærri Thessaloniki á Grikklandi í gær, þegar skógareldar ógnuðu tveimur vinsælum ferðamannastöðum.Flytja varð ferðamennina burt á bátum því skógareldarnir nálguðust strendurnar. Sumir voru fluttir á nærliggjandi strendur og um 200 þeirra voru fluttir um borð í skip sem beið fyrir utan ferðamannastaðina.Um 200 slökkviliðsmenn börðust við skógarelda og fór slökkvistarf bæði fram á jörðu niðri og úr flugvélum og þyrlum. Búið er að ná stjórn á eldunum en tveir slökkviliðsmenn slösuðust við störf.Grísk yfirvöld hafa gefið út fimm viðvaranir vegna skógarelda á meginlandi Grikklands. Yfirvöld á Halkidiki-skaga hafa auk þess bannað almenningi að fara um furuskógana á svæðinu vegna eldhættu. ALVARLEGT ÁSTAND Í LOKVA ROGOZNICA Í KRÓAT
Ferðamenn fluttir burt á bátum vegna skógarelda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd