Setur 100% innflutningstolla á dróna sem eru taldir ógn við þjóðaröryggi

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að tollar verða settir á innflutta dróna og drónaíhluti.100% innflutningstollar verða settir á ákveðnar tegundir en það veltur á stærð þeirra og hvort þeir séu taldir ógn við þjóðaröryggi. Drónar sem eru 25 kg að þyngd eða yfir og útbúnir hitamyndavélum eða eru með tengikví, falla undir þann flokk.Minni drónar sem ekki eru taldir ógna þjóðaröryggi verða með 25% toll. Þá verða drónar og drónavarahlutir sem framleiddir eru í Evrópusambandinu, Japan, Liechtenstein, Kóreu, Sviss og Tævan með 10% toll.Bandaríkjaforseti hefur réttlætt þessa ákvörðun með vísan til þjóðaröryggis. Þá er vonast til þess að tollarnir hvetji til innlendrar framleiðslu á drónum og íhlutum og dragi úr innflutningi frá erlendum framleiðendum.
Setur 100% innflutningstolla á dróna sem eru taldir ógn við þjóðaröryggi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd