Sjötíu manns voru skráð til leiks í Fossvogssundið sem fór fram í kvöld. Synt er um 1100 metra leið.Herdís Anna Þorvaldsdóttir, formaður Sund- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur, segir þátttakendur af öllum aldri. Fólk allt frá fimmtán ára upp í áttrætt hafi tekið þátt, enda verði maður eilífur af því að synda í sjónum.Ekki er keppt um verðlaun heldur er frekar litið á sundið sem áskorun. Þau fyrstu eru um 20 mínútur að klára sundsprettinn. Eftir sundið gleypir sundfólkið svo í sig næringu og slakar á í heitum potti og gufu.