Almyrkvinn „var tvímælalaust hápunktur í lífi okkar“

Tæplega hundrað og þrjátíu þúsund ferðamenn komu til landsins til að fylgjast með sólmyrkvanum, 75 þúsund frá landi og 53 þúsund voru um borð í skemmtiferðaskipum. Mestur fjöldi var á Vesturlandi, þar var víða skýjað en flestir segja það ekki hafa komið að sök, sjónarspilið hafi engu að síður verið stórkostlegt.Fjöldinn allur upplifði almyrkva í fyrsta sinn á Íslandi í gær, þar á meðal Íslendingar, ferðamenn og fólk í ferðaþjónustu. „Við eltum reyndar sólmyrkva um allan heim. Þessi var tvímælalaust hápunkturinn í lífi okkar,“ segja hjón frá Kanada. BARA EINU SINNI UM ÆVINA Sævar Þór Sigmarsson, þyrluflugmaður hjá Norðurflugi, sagðist hafa veðjað á réttan stað til að sjá myrkvann sem best.„Við, eins og fleiri landsmenn, vorum búin að liggja yfir skýjahuluspánni og sáum það að mestu líkur
Almyrkvinn „var tvímælalaust hápunktur í lífi okkar“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd