Bilunin sem olli rafmagnsleysi í Mosfellsbæ og Grafarvogi fundin

Rafmagnslaust var í kvöld í hluta Grafarvogs og Mosfellsbæjar vegna bilunar, segir í tilkynningu á vef Veitna. Rafmagnsleysis varð fyrst vart í öllum Mosfellsbæ og hluta Grafarvogs klukkan rétt fyrir klukkan átta í kvöld en rafmagni hefur verið komið á hluta Mosfellsbæjar. Í uppfærslu frá því laust fyrir hálf ellefu segir jafnframt að bilunin sé fundin og að rafmagn komi á fljótlega.Í tilkynningunni segir að verið sé að kanna hvað veldur rafmagnsleysinu. Þá er bent á að það geti einnig haft áhrif á afhendingu á heitu vatni, sér í lagi ofarlega í hæðum. Netsamband getur einnig orðið fyrir áhrifum. Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir að rekja megi rafmagnsleysið til háspennubilunar en að óvenju langan tíma taki að finna hana. Viðgerðarfólk Veitna fari skipulega milli svæða í
Bilunin sem olli rafmagnsleysi í Mosfellsbæ og Grafarvogi fundin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd