Landsbankinn spáir 0,25 prósentustiga stýrivaxtahækkun í vaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir verðbólgu enn háa og að verðbólguhorfur hafi versnað. Við þær aðstæður sé hætta á því að verðbólga festist í sessi. Seðlabankinn geti beitt stýrivaxtahækkun til að draga úr fjárfestingum og hægja á hagkerfinu.„Það þarf að passa sig að hækka ekki um of, keyra hagkerfið í kreppu eða eitthvað slíkt. Ég tel ekki hættu á að slíkt gerist núna og ég held að Seðlabankinn muni vera sammála því og líta á sem svo að hann geti hækkað stýrivexti í næstu viku og þannig reynt að koma verðbólgu og sérstaklega verðbólguvæntingum niður áður en aðilar vinnumarkaðarins þurfa að setjast niður og ráða ráðum,“ sagði Una í sjónvarpsfréttum.Aðalhagfræðingur Landsban