Kartöflubændur segja grös hafa sprottið ágætlega um nær allt land, þrátt fyrir að veðrið hafi farið misvel með garðana eftir landshlutum. Mestu skiptir nú að ekki frysti næstu vikurnar.Nýjar íslenskar kartöflur þykir mörgum ómissandi í matseldina síðsumars og þetta árið ætti að vera af nægu af taka. Fyrsta uppskera kom vel út um nær allt land, þó veðurgæðunum hafi verið misskipt milli landshluta.Nú skiptir mestu að veður verði skaplegt næstu vikurnar og að ekki frjósi í jörðu, því ef hiti fer niður fyrir frostmark þá falla grösin og getur orðið uppskerubrestur.