Bætti dagsgamalt heimsmet sitt

Fjórða degi EM í sundi í París er lokið en keppt var til úrslita í fimm greinum í dag. Eitt heimsmet féll og svo Evrópumet.Hin ítalska Sara Curtis bætti heimsmetið í undanúrslitum 50 metra baksunds kvenna í gær og gerði sér lítið fyrir og endurtók leikinn í dag í úrslitasundinu. Hún synti á 26,56 sekúndum sem er bæting um 7 hundraðshluta.Þetta er fyrsta Evrópumeistaragull Curtis í 50 metra laug en hún vann sömu grein í fyrra í stuttri laug. Hún hefur átt afar gott mót í París því hún fékk brons í 100 metra skriðsundi og silfur ásamt ítölsku kvennasveitinni í 4x100 metra skriðboðsundi. VANN EVRÓPUMETHAFANN OG STAL METINU AF HONUM Kristóf Milák frá Ungverjalandi bar sigur úr býtum í 100 metra flugsundi karla á tímanum 49,48 sekúndum sem er nýtt Evrópumet. Frakkinn Massime Grousett átti me
Bætti dagsgamalt heimsmet sitt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd