Tæp 5% kjósenda hafa þegar skilað inn atkvæði sínu

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju hefur farið nokkuð hratt af stað.Alls hafa um 13.187 atkvæði verið greidd utan kjörfundar síðan atkvæðagreiðslan hófst 27. júlí. Þá hafa um 8.524 manns greitt atkvæði utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu, þar af um 841 í dag. Alls eru 272.690 á kjörskrá á Íslandi sem þýðir að rétt rúm 4,8% kjósenda hafa þegar greitt atkvæði.„Ég hef það á tilfinningunni að það sé svona frekar hátt hlutfall. En það er auðvitað erfitt að bera þetta saman við fyrri kosningar bæði vegna þess að utankjörfundartíminn er eilítið lengri en venjulega, yfirleitt er hann 29 dagar, og svo erum við kannski ekki með aðra þjóðaratkvæðagreiðslu sem hefur farið fram nýverið til að bera okkur saman við,“ segir Ástríður Jóh
Tæp 5% kjósenda hafa þegar skilað inn atkvæði sínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd