Alvarlegt ef brottvísun brotamanna dregur úr fælingarmætti

Afbrotafræðingur segir reynslulausn og brottvísun manns sem dæmdur var til sextán ára fangelsis fyrir manndráp vekja upp ýmsar spurningar um fælingarmátt, öryggi og réttlæti. Staða fangelsismála og skortur á innviðum sé áhyggjuefni.Albaníumaðurinn Angjelin Sterkaj var dæmdur til 16 ára fangelsisvistar fyrir morðið á Armando Beqiri í Rauðagerði árið 2021. Þar sem þriðjungur refsitíma Sterkaj er liðinn hefur honum verið veitt reynslulausn og vísað úr landi á grundvelli nýlegrar lagabreytingar dómsmálaráðherra.Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir skiljanlegt að ýmsar spurningar vakni við ákvarðanir sem þessar. Vissan um refsingu hafi minnkað og þá hafi réttarkerfið í heild sinni minni fælingarmátt og sem sé alvarlegt í sjálfu sér.„Það fyrsta sem
Alvarlegt ef brottvísun brotamanna dregur úr fælingarmætti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd