Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Gunnar, sem lést 29. júlí, 81 árs, var einn afkastamesti og dáðasti tónlistarmaður þjóðarinnar.Hann var fyrsti popptónlistarmaðurinn til að fá listamannalaun og var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu árið 2002 fyrir framlag til íslenskrar tónlistar. Hann fékk heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna árið 1996 og var borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2014. Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Sigrún Toby Herman. Hann eignaðist fimm börn og fjögur þeirra eru á lífi.Mörg af hans þekktustu lögum voru flutt við athöfnina í dag, en séra Hjörtur Magni Jóhannsson jarðsöng Gunnar.