Svíar samþykkja sakhæfi 14 ára barna

Hægt verður að dæma 14 ára börn í fangelsi fyrir sérstaklega alvarleg brot. Sænska þingið samþykkti þetta í dag með 281 atkvæði gegn 66. Lágmarksaldurinn var áður 16 ár. Ríkisstjórnin vildi upphaflega að sakhæfisaldurinn væri lækkaður niður í 13 ár en hækkaði mörkin eftir að í ljós kom að slík tillaga hefði ekki þingmeirihluta.Ný lög, sem taka gildi 10. september, gera ráð fyrir að hægt verði að dæma 14 ára börn í fangelsi fyrir brot á borð við morð, nauðgun og alvarleg vopnalagabrot. Þó að aldurstakmörkin hafi verið hækkuð frá upphaflegri tillögu hefur hún sætt mikilli gagnrýni, meðal annars frá yfirvöldum, samtökum sem berjast fyrir réttindum barna og sérfræðingum.Ríkisstjórnin hefur hins vegar sagt að þetta sé nauðsynlegt til þess að tryggja réttlæti fyrir þolendur glæpa og vernda samfé
Svíar samþykkja sakhæfi 14 ára barna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd