Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir stjórnvöld ekki hafa hlustað þegar varað hefur verið við sjálfvirkum útgjöldum ríkissjóðs og það séu mikil vonbrigði að verðbólga hafi aukist svo mikið á aðeins einu ári.Forsendubrestur kjarasamninga blasi við og samningsaðilar verði að setjast niður og láta á það reyna að láta samningana lifa út samningstímann; það sé langæskilegast.Flest bendir til þess að verðbólga verði ekki undir 4,7 prósentum í þessum mánuði, sem hefur verið viðmið til þess að kjarasamningar sem skrifað var undir í mars 2024 haldi. Þess vegna er talað um forsendubrest kjarasamninga í haust.„Það er orðið alveg útséð með það að við fáum verðbólgumælingar sem eru innan marka kjarasamninganna þannig að það stefnir í að það þurfi að fara yfir stöðuna núna í haust,“ segir Bjarn