Ríkisútvarpið fékk efni frá 322 manns víða um allt land, í bæjum, við sjó, á túnum jafnt sem fjallstindum.Leikskólabörn skreyttu stofuna sína með himintunglum, íbúar á dvalarheimilum fóru saman út, fjölskyldur grilluðu í náttúrunni, fólk opnaði kampavínsflöskur, hundar léku sér með sólmyrkvagleraugu, fuglar forðuðu sér, ungt fólk dansaði, hjúkrunarfræðingar kíktu út um gluggann. Þið senduð okkur teikningar, kökur, ljósmyndir af almyrkvanum og sjálfur (mjög mjög mikið af sjálfu-myndum).Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir ásamt myndskeiðum sem þið ákváðuð að deila með okkur. Sjón er sögu ríkari.