Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu dagana 12. til 15. maí á næsta ári. Greint er frá valinu í tilkynningu Evrópska sjónvarpssambandsins.Búlgarska söngkonan Dara vann keppnina fyrir Búlgaríu í vor með laginu Bangaranga. Þetta er í fyrsta skipti sem Búlgaría sigrar og hýsir keppnina. EKKI HALDIN Í HÖFUÐBORGINNI Martin Green, framkvæmdastjóri Eurovision, kveðst afar ánægður með staðsetninguna en keppnin verður haldin í höllinni Arena Burgas. Höllin var opnuð árið 2023 og getur hún hýst allt að 15.000 manns.Keppnin er ekki haldin í höfuðborg landsins, Sofiu, eins og margir höfðu búist við. Valið stóð á milli fjögurra borga og hreppti Burgas hnossið.Borgin er fjórða stærsta borg landsins og er við Svartahaf.