Tvær stórar aðgerðir lögreglunnar í Ekvador leiddu af sér að hald var lagt á yfir eitt og hálft tonn af kókaíni. Efnið hafði verið flutt þangað frá Kólumbíu til geymslu. Það var geymt í 42 pokum sem í voru yfir 1.600 pakkningar.Í annarri aðgerðinni stöðvaði lögreglan vörubíl með 370 pakkningum sem voru faldar í fölskum botni. Þær voru merktar mynd af Erling Haaland, norska knattspyrnumanninum sem sló í gegn á heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar. Fótbolti og HM-styttan voru á öðrum pakkningum. Kólumbísk kona var handtekin.Lögreglan í Ekvador hefur lagt hald á yfir 42 tonn af eiturlyfjum það sem af er ári.