Ákæra eigendur Santé fyrir að selja rútu af bjór og rauðvínsflösku

Eigendur Santé, netverslunar með áfengi, þeir Arnar Sigurðarson og Elías Blöndal Guðjónsson, hafa verið ákærðir fyrir brot á áfengislögum og peningaþvætti.Vísir sagði fyrst frá.Í ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu segir að eigendurnir hafi borið ábyrgð á smásölu áfengis með sölu á einni rauðvínsflösku og rútu af bjór í ágúst 2025. PENINGAÞVÆTTI AÐ UPPHÆÐ 9.010 Þann 14. ágúst 2025 var rauðvínsflaska af tegundinni 2020 Guelbenzu Vierlas seld í smásölu á starfsstöð Santé í Skeifunni 8 fyrir 3.200 krónur. Sama dag var kassi af BolaX bjór, 12 ofurdósir, seldur á 5.810 krónur í gegnum vefsíðu Santé sem hýst er af franska fyrirtækinu SanteWines SAS.Í ákæru segir að smásala áfengisins hafi verið liður í starfsemi tveggja félaga í þeirra eigu. Þá hafi áfengið verið geymt á starfsstöð Sa
Ákæra eigendur Santé fyrir að selja rútu af bjór og rauðvínsflösku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd