Stöðva þéttingaráform við Sóleyjarima

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að fallið verði frá frekari vinnu við fyrirhugaða íbúðarbyggð á túni við Sóleyjarima í Grafarvogi, svokölluðu Sóleyjatúni.Á fundi ráðsins í september 2024 voru lagðar fram tillögur að nýrri íbúðabyggð á túninu og samþykkt að vinna áfram með tillögur arkitektastofunnar Esju. Ráðið hefur nú falið umhverfis- og skipulagssviði að loka málinu.Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins í ráðinu segja ákvörðunina tekna í samræmi við stefnu meirihlutans og vísa í verkefnalista hans þar sem segir: „Við ætlum að falla frá fyrirhugaðri þéttingu í Grafarvogi og skoða ný tækifæri í samráði við íbúa.“Í bókun meirihlutans segir: „Meirihlutinn leggur áherslu á að næstu skref í húsnæðisuppbyggingu í Grafarvogi verði mótuð í raunve
Stöðva þéttingaráform við Sóleyjarima

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd