Innkalla pylsur frá Krónunni vegna skorts á innihaldslista

Framleiðslulota af pylsum frá Krónunni hefur verið innkölluð vegna skorts á innihaldslista á umbúðum. Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja við því að neyta pylsanna.Pylsurnar hafa lotunúmerið 758-26210-2. Hægt er að skila þeim aftur í verslun til að fá endurgreiðslu. Þær eru framleiddar af Kjarnafæði Norðlenska fyrir Krónuna.„Ein lota af vörunni fór á markað án innihaldslista. Varan inniheldur sojaprótein sem kemur ekki fram á umbúðum hennar. Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, hefur innkallað vöruna,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.Til vinstri má sjá Krónu pylsur úr lotunni sem vantar á innihaldslista. Til hægri er venjulegur Krónu pylsupakki.Matvælastofnun
Innkalla pylsur frá Krónunni vegna skorts á innihaldslista

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd