Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar enn mál sem kom upp á Akureyri um verslunarmannahelgina, þegar fimm ungir menn voru handteknir fyrir að miða skotvopni á vegfarendur. Síðar kom í ljós að byssurnar voru eftirlíkingar eða leikfangabyssur. Að sögn Skarphéðins Aðalsteinssonar, yfirmanns hjá rannsóknardeild lögreglunnar, miðar rannsókn málsins vel en ómögulegt sé að segja til um hvort gefin verði út ákæra. Mönnunum var öllum sleppt að lokinni skýrslutöku.Verði gefin út ákæra verður það fyrir vopnalagabrot en í vopnalögum er kveðið á um að eftirlíkingar af byssum þurfi að geyma í þar til gerðum byssuskáp, þær þurfi að skrá og hafa leyfi fyrir.Þegar rannsókn málsins er lokið þarf ákærusvið að taka ákvörðun um hvort mennirnir verði sektaðir, þeir kærðir eða ekkert gert. Mun væntanlega vega