Íranar og Bandaríkjamenn segjast báðir stjórna Hormússundi

Íranski herinn segir Donald Trump forseta Bandaríkjanna fara með fleipur þegar hann segir að Bandaríkin hafi náð stjórn á Hormússundi. Þvert á móti sé sundið enn að fullu undir stjórn Írans.Trump sagði í færslu á Truth Social í gær að Bandaríkin hefðu nú fulla stjórn á Hormússundi. „ÉG HELD AÐ VIÐ MUNUM HALDA ÞVÍ! Hafnbann okkar hefur fengið nafnið „STÁLVEGGURINN“ hjá öllum og Íranar geta ekkert gert í því,“ sagði hann. Trump viðhafði svipuð ummæli í samtali við fréttamenn í gær. „EKKERT ANNAÐ EN LYGAR OG UPPSPUNI“ Leiðtogi Basij-hersveitarinnar, sem heyrir undir Íranska byltingarvörðinn, sagði í morgun að Íranar væru með stjórnina á sundinu. Þetta endurtók Ebrahim Zolfaghari talsmaður íranska hersins. „Þessar röngu fullyrðingar Bandaríkjanna að skip séu að sigla eðlilega í gegnum Hormú
Íranar og Bandaríkjamenn segjast báðir stjórna Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd