Varaformaður Vinstri grænna segir já

Bjarki Hjörleifsson, varaformaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði með því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar á ný. Hann greinir frá þessu í færslu á Facebook.Í færslunni segir hann fólk sem sé alfarið á móti aðild hafa fulla ástæðu til að segja nei. „En þau okkar sem vilja vita hvaða samningur stendur Íslandi raunverulega til boða geta sagt já án þess að skuldbinda sig til að samþykkja þann samning síðar,“ segir hann.„Ég tel líka að þetta sé besta leiðin til að fá loksins botn í mál sem hefur klofið íslenska þjóð í áratugi. Það er mikilvægt fyrir þroska lýðræðis hér á Íslandi að þjóðin fái að koma að þessari ákvörðun með beinum hætti.“Bjarki segist ekki ætla að greiða atkvæði með aðild Íslands að Evrópusambandinu tryggi niðurstaða samningaviðræðna ekki hagsmuni nát
Varaformaður Vinstri grænna segir já

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd