Samningurinn um evrópska efnahagssvæðið (EES) heldur ekki velli til lengri tíma. Þetta segir Ine Eriksen Søreide leiðtogi Hægri flokksins í Noregi og fyrrverandi utanríkisráðherra landsins.Søreide, sem var utanríkisráðherra í hægri stjórn Ernu Solberg, tók þátt í umræðum sem fjölmiðillinn Dagens Næringsliv stóð fyrir í tilefni af yfirstandandi Arendalsviku. Hún er árlegur viðburður sem samanstendur af stjórnmálafundum, bæði á landsvísu og staðbundið, í fimm daga. FORGANGUR ESB ANNARSSTAÐAR Ummælin voru sett í samhengi við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sagði hún að EES-samningurinn héngi í raun á bláþræði. „EES-samningurinn mun ekki, að mínu mati, halda velli til lengri tíma. Það tel ég, nánast óháð því hvað