Bergþór Karlsson, einn eigenda og fyrrverandi framkvæmdastjóri Hölds, bílaleigu Akureyrar, segir allt hafa gengið vel fyrir sig hjá bílaleigum við Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir stóran dag í dag. Unnið hafi verið hörðum höndum að undirbúningi, enda var fjölmenni að yfirgefa landið eftir sólmyrkvadaginn í gær.„Við fengum inn fólk á aukavakt til að hjálpa okkur, fólk var að vakna klukkan hálf fimm í morgun til þess að koma og hjálpa okkur og það skiptir öllu máli fyrir okkur.“ ALDREI SÉÐ ANNAÐ EINS Í FLUGSTÖÐINNI Annað var þó uppi á teningnum í brottfararsal flugstöðvarinnar en langar raðir mynduðust í morgunsárið þegar straum ferðafólks bar að garði. Bergþór segist ekki muna eftir öðru eins ástandi.„Það var bara allt í kássu. Menn voru að reyna, það var búið að búa til einhverjar raðir o