Ákveðið hefur verið að ljúka við útlagningu nýju neysluvatnslagnarinnar milli lands og Eyja, NSL-4. Lögnin, sem hefur verið nefnd almannavarnalögn, skemmdist um helgina meðan verið var að leggja hana.Nú liggja fyrir niðurstöður forathugunar á skemmdunum. Það er niðurstaða hennar að það besta í stöðunni sé að klára útlagninguna.„Í þeirri von að hægt verði að nýta hana að einhverju marki,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, í samtali við fréttastofuHún segir að kostnaður við lögnina sjálfa og útlagningu hennar í sjó nemi um þremur milljörðum króna, en að enginn kostnaður muni þó falla á sveitarfélagið.Íris þó áherslu á að engin viðurkenning á ábyrgð á atvikinu eða tjóninu felist í ákvörðun um að láta ljúka verkinu.Aðeins eru þrjú ár síðan eina vatnslögnin milli lands og Eyj