Umgengni til fyrirmyndar í Breiðavík

Hátt í 2000 manns lögðu leið sína í Breiðavík í gær til að fylgjast með sólmyrkvanum. Keran Ólason, eigandi Hótel Breiðavíkur, segir að gestir hafi verið glaðir og fullir eftirvæntingar.Aðstæður voru líklega bestar á Látrabjargi. Þar varði almyrkvinn lengst auk þess sem þar var heiðskírt, ólíkt því sem var víðast hvar annars staðar.Keran segir gestina sína hafa verið til fyrirmyndar. Miðað við ástandið á svæðinu mætti halda að ekkert hafi í skorist. EKKI DÓS SJÁANLEG „Umgangurinn er algjörlega til fyrirmyndar. Ég var einmitt að keyra, núna klukkan rúmlega sex, hring um tjaldsvæðið sem ég geri alltaf; að tékka á að allt sé í góðu lagi. Og ég get sagt það að það er ekki ein dós sjáanleg hérna á svæðinu af rusli,“ segir hann.„Þannig að það verður bara gaman að fara að ganga frá hérna.“Dagi
Umgengni til fyrirmyndar í Breiðavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd