Sólmyrkvinn líklega verðbólguhvetjandi

Aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvann hafði líklega áhrif á verð bílaleigubíla, flugfargjalda til útlanda og gistiþjónustu í ágúst að mati Landsbankans.Töluverð óvissa ríkir um verðbólgumælingu Hagstofunnar í mánuðinum, ekki síst vegna sólmyrkvans. Greiningardeild bankans spáir því að verðbólgan mælist 5,5% sem er ögn meira en í fyrri spá.„Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvann hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum,“ segir í spá bankans.Hagstofan birtir mælingu á vísitölu neysluverðs eftir tvær v
Sólmyrkvinn líklega verðbólguhvetjandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd