Sektaður fyrir að vekja ísbjörn

Skrifstofa fylkisstjórans á Svalbarða hefur sektað mann um 50 þúsund norskar krónur, jafnvirði 650 þúsund íslenskra króna, fyrir að vekja sofandi ísbjörn.Maðurinn var á siglingu fyrr í mánuðinum í firði í norðausturhluta Svalbarða. Í yfirlýsingu frá fylkisstjóranum segir að skipverjar hafi þá tekið eftir ísbirni sem var sofandi uppi á landi. Einn af skipverjum hafi þá notað þokulúður skipsins til að vekja ísbjörninn. Það hafði þau einu áhrif að dýrið færði sig til.Ísbirnir hafa verið friðaðir á Svalbarða frá árinu 1972. Samkvæmt reglum þar er bannað að ónáða, tæla eða nálgast ísbirni að nauðsynjalausu. Skrifstofa fylkisstjórans lagði sektina umsvifalaust á manninn, sem gekkst við brotinu og greiddi sektina möglunarlaust.Ekki kom fram í yfirlýsingunni hverrar þjóðar maðurinn er. Um 260 ísbi
Sektaður fyrir að vekja ísbjörn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd