Sóttu veikan kajakræðara í Ísafjarðardjúpi

Áhöfn björgunarskipsins Guðmundar í Tungu sótti veikan ferðamann á Tjaldtanga á Folafæti sem er ysti tangi á Hesti, sem skilur að Seyðisfjörð og Hestfjörð í Ísafjarðardjúpi.Ferðamennirnir, sem voru í kajakferð um djúpið, höfðu komið upp tjöldum á Tjaldtanga sem er utan alfaraleiðar og því eina leiðin að sjúklingnum sjóleiðin.Í tilkynningu Landsbjargar segir að ekki hafi verið talið að viðkomandi væri alvarlega veikur en var hann fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.Aðsend / LandsbjörgÚtkallið er það fimmta frá 19. júlí s.l. sem að Guðmundur í Tungu sinnir sjúkraflutningum í Ísafjarðardjúpi.
Sóttu veikan kajakræðara í Ísafjarðardjúpi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd