Stjórnendur kjarnorkuversins í Cernadova í Rúmeníu byrjuðu í dag að slökkva á seinni kjarnaofni sínum vegna lágs vatnsborðs Dónár.Áin hefur verið notuð til að kæla ofnana sem er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir geislun. Af þeim sökum var slökkt á fyrri ofninum í síðasta mánuði. Stjórnendur Nuclearelectrica SA, sem reka kjarnorkuverið, hafa gripið til ýmissa ráðstafana til að koma í veg fyrir að slökkva þurfi á hinum ofninum, meðal annars með því að sprengja berg í ánni til að breyta flæði hennar. Það hefur ekki borið tilætlaðan árangur.Hvor kjarnaofn um sig er um 700 megavött, sem er aðeins meira en Kárahnjúkavirkjun. Kjarnorkuverið framleiðir alla jafna um 20% af því rafmagni sem Rúmenar þurfa. Nú þarf að fá þann hluta með öðrum leiðum eins og vindorku og innflutningi á orku. Orkumálar