Langar raðir hafa myndast á Keflavíkurflugvelli í dag, svo langar að þær ná út fyrir flugstöðvarbygginguna. Samkvæmt ábendingu sem fréttastofu barst virðist ekki vera álag í innritun en röðin í öryggisleitina hlykkist um allan brottfararsalinn.Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, telur að sterkar líkur séu á að ástandið sé tilkomið vegna mikils fjölda erlendra ferðamanna sem er á heimleið eftir að hafa horft á sólmyrkvann. Hann gat ekki sagt til um hvort fjöldi brottfara væri meiri í dag en gengur og gerist á þessum tíma ársins.Spurður að því hvort Isavia hefði getað gert eitthvað til að koma í veg fyrir þetta segir Guðjón þetta hafa verið viðbúið. Alltaf geti myndast teppur þegar margir koma í flugstöðina á sama tíma.„Það sem getur spilað inn í er að margar vélar eru að fara á svip