Hátt í tvö þúsund manns lögðu leið sína til Breiðavíkur í gær til að horfa á sólmyrkvann. Eigandi Hótel Breiðavíkur segir ánægju og eftirvæntingu hafa skinið af gestum.Látrabjarg var líklega besti staðurinn til að berja sólmyrkva gærdagsins augum. Þar varði almyrkvinn lengst og þar var heiðskírt og sást til sólar, ólíkt því sem var víðast hvar annars staðar.Keran Ólafsson eigandi Hótel Breiðavík segir alla gestina tvö þúsund hafa verið til fyrirmyndar. Miðað við ástandið á svæðinu mætti halda að ekkert hafi í skorist. EKKI DÓS SJÁANLEG „Umgangurinn er algjörlega til fyrirmyndar. Ég var einmitt að keyra núna klukkan rúmlega sex hring um tjaldsvæðið sem ég geri alltaf; að tékka á að allt sé í góðu lagi. Og ég get sagt það að það er ekki ein dós sjáanleg hérna á svæðinu af rusli,“ segir Ke