Fjölmiðlafulltrúi Trumps lætur af störfum

Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, lætur af störfum við enda mánaðarins. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu í gær. Hún hefur verið einn nánasti ráðgjafi Trumps. Leavitt verður Trump og Repúblikanaflokknum áfram innan handar sem samskiptaráðgjafi. Þá mun hún starfa innan flokksins við stefnumörkun fyrir MAGA-hreyfinguna.Leavitt, sem er 28 ára, var ráðin fjölmiðlafulltrúi í janúar í fyrra. Hún varð þá sú yngsta til að gegna þessu hlutverki. Ekki hefur verið greint frá því hver tekur við starfinu. Í færslu á samfélagsmiðlinum X sagði Leavitt það hafa verið mikinn heiður og ævintýri að vinna sem fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins. Hún stefndi að því að verja meiri tíma með börnunum sínum.Trump sagði á samfélagsmiðlum Leavitt hafa verið sannkallaðan leiðtoga í Hvíta h
Fjölmiðlafulltrúi Trumps lætur af störfum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd