Slasaðist eftir fall á tjaldsvæðinu í Ólafsvík

Maður slasaðist eftir fall á tjaldsvæðinu í Ólafsvík í nótt eða snemma morguns. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins. Hún tók á loft um korteri yfir sex í morgun og flaug til móts við sjúkrabíl, samkvæmt upplýsingum frá Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.Sjúkrabíllinn og þyrlan mættust hjá Vegamótum. Hinn slasaði var svo fluttur á Landspítalann í Fossvogi. Þar lenti þyrlan um 20 mínútum yfir 7.Landhelgisgæslan hefur ekki upplýsingar um líðan mannsins.
Slasaðist eftir fall á tjaldsvæðinu í Ólafsvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd