Vladimir Pútín Rússlandsforseti heimsótti Kuril-eyjur norður af Japan í fyrsta sinn í dag. Stjórnvöld í Kreml birtu myndskeið af Pútín í heimsókn í fiskvinnslustöð þar sem hann smakkaði kavíar. Hann fór til Kuril-eyja eftir heimsókn til rússnesku Sakhalin-eyja, þar sem rússneski sjóherinn var við æfingar.Utanríkisráðherra Japans, Toshimitsu Motegi, segir í yfirlýsingu að Norðurhéruðin, líkt og Japanar kalla eyjarnar, séu óaðskiljanlegur hluti af yfirráðasvæði Japans bæði í sögulegu samhengi og samkvæmt alþjóðalögum. Hann segir að stjórnvöld í Japan mótmæli heimsókninni harðlega.Pútín hélt fund á Sakhalin-eyju um öryggi landamæra Rússlands í austri. Samskipti Rússlands og Japan hafa versnað síðan innrásin hófst í Úkraínu, á sama tíma og tengsl Rússa við Kína og Norður-Kóreu hafa styrkst.Sov