Íslandspóstur hefur hækkað gjaldskrá sína fyrir útburð á bréfum í léttasta flokki, sem tekur til sendinga allt að 50 grömmum, um samtals 39% frá 1. desember í fyrra, þ.e. á átta mánaða tímabili. Síðasta hækkunin í þessum flokki varð þann 1. ágúst sl. en þá hækkaði gjaldið úr 350 krónum í 365 krónur, sem þýðir hækkun upp á 4,75%.