Enginn getur sagt neitt til um það hversu lengi Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, verður við bryggju í Reykjavík. Áhöfnin er að hluta þegar farin úr landi og því óvíst hvernig hægt verður að sigla skipinu aftur til síns heima. Á meðan safnar Bandero lestargjaldi og daglegum bryggjugjöldum samkvæmt gjaldskrá Faxaflóahafna.