Bráðabirgðastjórn Venesúela og fulltrúar stjórnarandstöðunnar luku fyrstu umferð viðræðna í gær. Viðræðunum er ætlað að sætta þjóðina eftir að Nicolas Maduro, fyrrum forseti landsins, var handtekinn af Bandaríkjastjórn í janúar og steypt af stóli.Í sameiginlegri yfirlýsingu segir að bráðabirgðastjórnin og fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafi samþykkt að hefja umbætur á dómskerfinu og í ljósi mannskæðu jarðskjálftanna 24. júní, vinna að því að fá aðgang að frystum eignum sem eru sagðar geymdar í Seðlabanka Englands. VILJA FÁ AÐGANG AÐ FRYSTUM EIGNUM Hæstiréttur Venesúela staðfesti endurkjör Madúros árið 2024, þrátt fyrir alvarlegar ásakanir um kosningasvik og engar opinberar tölur um niðurstöður kosninganna. Undir hans stjórn reyndu stjórnvöld ítrekað að fá aðgang að frystum eignum landsi