Úkraínski flugherinn tilkynnti í gær að hætt verði að gefa upp nákvæmar upplýsingar um fjölda rússneskra flugskeytaárása í Úkraínu. Þetta felur í sér að ekki verða gefnar nákvæmar upplýsingar um fjölda rússneskra flugskeyta sem skotið er að skotmörkum, hversu mörg þeirra eru skotin niður eða stöðvuð eða fjölda þeirra sem geiga fram hjá skotmörkum.Stjórn hersins ákvað að gera þessar breytingar á morgunskýrslum sínum um árásir Rússa, sagði Yuriy Ignat, upplýsingafulltrúi flughersins, á Facebook. Hann segir að viðvaranir vegna árása verði áfram gefnar út í rauntíma og úkraínski flugherinn ætli að gefa upp almennar tölur yfir fjölda rússneskra flugskeyta. SKORTUR Á PATRIOT-LOFTVARNARKERFI TIL AÐ VERJAST ÁRÁSUNUM Rússneski herinn skaut yfir 450 flugskeytum af ýmsum gerðum að Úkraínu í júlí o