Malbikun á Suðurlandi seinkað vegna veðurs

Malbikunarframkvæmdum á Suðurlandsvegi verður seinkað til klukkan 09:30 í fyrramálið, fimmtudag, vegna veðurs.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Colas sem sér um framkvæmdirnar. Framkvæmdir halda svo áfram í kvöld, fimmtudagskvöldið 13. ágúst, frá kl. 21:00 -07:00 samkvæmt áætlun. Annarri akreininni er lokað á meðan á framkvæmdum stendur á um 1,3 km kafla við Bitru. Hliðavegir eru lokaðir tímabundið á meðan farið er framhjá. Umferð verður stýrt framhjá framkvæmdasvæðinu og merkingar settar upp.Til stóð að malbikunarframkvæmdirnar færu fram miðvikudagskvöldið 12. ágúst frá klukkan 21:00 til 07:00 að morgni fimmtudags 13. ágúst, en þeim framkvæmdum verður seinkað eins og áður segir vegna veðurs.Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vi
Malbikun á Suðurlandi seinkað vegna veðurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd